700kallar.bloggar.is
GN III hafin, smá yfirlit700kallar
Ojæja, ákvað að taka mér það bessaleyfi að skrifa smá um upphaf grunnnáms III í Lögregluskóla ríkisins.Fyrri hluti, seinni hluti:
Eins og mörgum er kunnugt um eru tveir hópar sem bera 07XX lögreglunúmer og hófu nám við lögregluskólann árið 2007. Annars vegar við, fyrri hlutinn, sem ber númer upp í 0748 og hins vegar seinni hlutinn sem ber númer fyrir ofan það og ég kann ekki heildartölu á.
Starfsnámi lokið;
Eeen engu að síður. Frá maí og fram til áramóta unnum við eins og kettir í kringum heitan graut á götum höfuðborgarsvæðisins, Suðurnesja og á fleiri stöðum úti á landi og fyrir mitt leyti þá var ég nokkuð sáttur við þessa átta mánuði í "stríðinu."
Upphaf GN III:
Skólinn hófst með pompi og prakt þann 8. janúar, að sjálfsögðu á þriðjudegi eins og hefð er fyrir. Og þá hófst verkefnavinnan! Tíminn er stuttur og þegar þetta er ritað ekki nema rúmir 80 dagar í útskrift, sem haldin verður í Bústaðarkirkju þann 18. apríl. Verið þar eða verið kassar.
Fjölgar í hópnum:
María Ósk sem var með okkur á fyrstu önninni, þá ólétt, eignaðist lítið löggubarn fyrir stuttu og að sjálfsögðu óskum við henni til hamingju með það.
Námið á önninni:
Námið á þessari önn er í heild rúmar 600 kennslustundir og af þeim eru ríflega 1/3 einungis verkleg þjálfun sem er breyting frá fyrri árum. Þá miðar námið einnig að því að það reynir meira á okkur sjálf sem lögreglumenn, þ.e. að við þurfum að afla okkur dýpri þekkingar á ýmsum málum, lögum og reglum. Enn sem komið er lýst mér mjög vel á það og held að ég geti skotið á að fleiri geri það.
CSI Íslands?
Það sem við höfum lært undanfarið í verklegri þjálfun er t.d. taka fingra- og skófara, en dyggir lögreglumenn frá tæknideild LRH veittu okkur innsýn í hluta síns áhugaverða starfs, sem flestir vilja tengja við CSI sjónvarpsþættina - en sú tenging er alls ekki raunhæf. Þá höfum við einnig lært sitt hvað um stöðvun ökutækja og var sú þjálfun mjög áhugaverð. Ekki má gleyma föstum liðum eins og venjulega, þ.e. 3 km hlaupa- og stöðuprófum Aðalsteins og Gumma og verð ég líka að minnast á fjallagarpaferð á Esjuna sem farin var í síðustu viku.
Að lokum:
Að mínu viti eru allir vel spenntir og áhugasamir um krefjandi verkefni annarinnar. Að sjálfsögðu eru allir með það eitt að leiðarljósi að klára þetta markmið, eins og hin tvö!
Engu að síður held ég að þessi lesning sé orðin þokkaleg. Við munum verða dugleg við að uppfæra okkur við umheiminn.....
Fylking! á brott gakk, yfir og út!
GummiÞ-0732