Ađalvalmynd

Allskonar Síđur

Auglýsing

Myndasíđan Okkar

Atburđarteljari

Ţađ styttist og styttist700kallar



Já, eftir tæplega þrjár vikur munu 45 nemendur Lögregluskóla ríkisins útskrifast eftir eins og hálfs árs nám. Mikil tilhlökkun í bland við prófastress og verkefnaskil einkennir hugarástand okkar þessa dagana. Það verður ekki sagt annað en að pressan sé mjög mikil.

Það sem við höfum gengið í gegnum á þessari önn er margt og ótrúlega mikið. Það nýjasta er að flestir hafa lokið lokaprófinu í stöðvaæfingum og held ég að ég geti kastað því fram að bætingar hafi verið hjá ölllum. Haldið var próf í rötun hjá Óla Emils og vonandi rata allir heim til sín úr skólanum núna. Skotvopnaprófið flaug í gegn og það næsta á dagskrá þessa vikuna er óeirðarþjálfunarnámskeið, sem haldið er af skólanum og sérsveit Ríkislögreglustjórans. Allt varðandi námskeiðið er að sjálfsögðu hernaðarleyndarmál.

Annars var ég að henda inn nokkrum myndum ----> hingað.

Hönd til kveðju upp!
GummiÞ-0732

Athugasemdir

1
Líney skrifar:
Ertu með eitthvað thing fyrir að taka mynd af sofandi fólki?? hehehe :D
31. mars 2008 klukkan 23:18
2
GummiŢ skrifar:
Þær voru bara til að sýna fram á erfiðleika skólans skohhh:D
31. mars 2008 klukkan 23:33
3
Pési skrifar:
Kvikindi :=)
05. apríl 2008 klukkan 17:25

Skrifa athugasemd

Teljari

Könnun

Hvernig leggst skólinn í ţig?