Aðalvalmynd

Allskonar Síður

Auglýsing

Myndasíðan Okkar

Atburðarteljari

Loka Partý700kallar

Jæja komiði sæl

Það hefur komið upp sú umræða að halda eitt almennilegt Loka Partý á laugardeginum eftir útskriftina þar sem við munum öll koma saman í síðasta sinn.

Pælingin er að reynað legija einhvern almennilegann sal sem allir mundu borga í þannig það yrði að öllum líkindum einhver 1000-1500 kr á mann.

Erfitt er að fá sali á þessum tíma vegna ferminga þannig að ef einhver telur sig geta reddað sal eða veit um einhvern góðann væri fínt ef sá hinn sami mundi reyna að tékka á þeim sal og láta svo vita. Brosandi

Lýst ykkur ekki bara vel á þetta? Svalur

Það er bara MÁNUÐUR eftir og svo próf.....þetta náttla er ekki hægt sko!

LRG-0747 Ullandi

Athugasemdir

1
Maggi skrifar:
Bara vona til að segja eitthvað, er ekki auðveldara að fá sal á föstudeginu, eða ætla kannski allir að vera með útskriftarveislu þá um kvöldið?

Bara svona hugmynd
Maggi
10. mars 2008 klukkan 18:49
2
Líney skrifar:
Við vorum að spá í laugardaginn frekar þar sem líklega eru margir með veislu á föstudeginum og svo fara einhverjir út á land þeir sem eiga heima þar :D En annar erum við opin fyrir öllu :)
11. mars 2008 klukkan 14:52
3
Pési skrifar:
Það yrði flott, taka þetta með trompi bara :)
Kannski að grilla hamborgara í bjór o.s.frv. ... *hóst Jóhannes* :Þ
13. mars 2008 klukkan 13:24
4
Jói skrifar:
Ég verð allavega ekki með útskriftarveislu á föstudeginum, ætla hinsvegar að bjóða sjálfum mér í veislurnar hjá ykkur og vera leiðinlegur, fullur og éta allan matinn. Og farðu bara að selja Herbalife þarna Phaukur
15. mars 2008 klukkan 20:35
5
Ég er með veislu á föstudeginum.. og er því svo til í lokapartý á laugardeginum :)
17. mars 2008 klukkan 18:50
6
Óli Ásgeir skrifar:
Eftir 18. apríl tekur við ár óreglunnar hjá mér. Ég er til í alla gleði á föstudögum, laugardögum sem aðra daga þar sem hafðar verða áfengar veigar um hönd.
18. mars 2008 klukkan 12:28
7
Heiðar Ingi skrifar:
Ég verð trúlega með veislu á laugardeginum...þannig að hann er off hjá mér.
21. mars 2008 klukkan 11:23
8
GummiÞ skrifar:
Ég er frekar hlynntari föstudeginum. Er sennilega með teiti á lau.
26. mars 2008 klukkan 01:37
9
Binni skrifar:
Ákaflega sammála síðasta ræðumanni. Föstudagurinn er málið. Er þekkt dæmi að halda veislur í heilar sólahring á Íslandi?
27. mars 2008 klukkan 22:00
10
GummiÞ skrifar:
Nákvæmlega Binni! Ég hef haft þann háttinn á að halda veislur í 2-3 tíma max, því að fólki finnst almennt leiðinlegt í veislum, fullt af vandræðalegum samtökum og momentum og þegar ég fer í veislur þá fer ég bara til að éta matinn og drekka bjórinn. Það tekur ekki meira en þrjá tíma hjá mér, enda er ég þá búinn á því og orðinn blindfullur.
27. mars 2008 klukkan 22:02
11
GummiÞ skrifar:
Samtölum á þetta að vera, ekki samtökum.
27. mars 2008 klukkan 22:04
12
Páll Bergmann skrifar:
Ég er töluvert mikið hlynntari föstudeginum þar sem að ég verð með hóf fyrir mína nánustu, ss. ekki ykkur, á Laugardeginum hehe
28. mars 2008 klukkan 23:14
13
Pez skrifar:
Bara báðir daganir og kannski sunnudagurinn lika, hehe :=)
28. mars 2008 klukkan 23:16
14
Páll Bergmann skrifar:
Ég elska ykkur samt...
29. mars 2008 klukkan 00:39
15
GummiÞ skrifar:
Ég elska þig ekki Páll! Höfum það á hreinu.
30. mars 2008 klukkan 23:15

Skrifa athugasemd

Teljari

Könnun

Hvernig leggst skólinn í þig?