Aðalvalmynd

Allskonar Síður

Auglýsing

Myndasíðan Okkar

Atburðarteljari

Tími fyrir aðgerðir?700kallar

Já sæll! Það er nóg að gerast hjá okkur núna og hefur verið síðustu vikur. Vegna fjölda áskoranna læt ég hér flakka valinkunn orð, en það er af miklu að taka:

Beinar útsendingar;
Í síðustu viku var próf í réttarsögu og á það mjög líklega eftir að koma vel út fyrir alla, þó svo að ein og ein spurning hafi verið að flækja málin. Jah, svona eins og gengur og gerist.

Og Óskarinn fæææær;
Það verður að minnast hér á ofbeldis- og kynferðisbrotafræðsluna sem við fengum fyrir 2 vikum. Þá fór öll vikan í lærdóm og fyrirlestra um þessi mál, enda málaflokkurinn víðfemur og oft á tíðum mjög flókinn(eins og starfið í heild). Fræðslan heppnaðist í alla staði mjög vel og er skemmst að minnast þess að ýmsir lögreglunemar hafa verið tilnefndir til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í raunhæfum verkefnum. Þá reyndi mjög á lögreglunema að takast á við aðstæður sem oft koma fyrir í starfinu.

Innfarar- og glock-tækni;
Af gefnu tilefni fengum við kennslu hjá Gumma Ásgeirs í lögregluæfingum, eða í þessu tilfelli aðgerðum. Þá lærðum við innfarartækni, enda kominn tími til. Ekki verður farið nánar út í þau atriði hér, en æfingarnar tókust vel að mínu viti. Sama dag var svo kennsla í meðhöndlun Glock, og fór Óli Egils út í ýmsa fræði um Glock-inn, eins og honum einum er lagið.

Vettvangsstjóri kallar á aðgerðarstjórn;
Þessa vikuna höfum við verið hjá ýmsum sérfræðingum í almannavörnum, að læra vettvangsstjórnun með tilliti til stórra slysa. Mjög áhugavert. Hefur öll vikan farið í fyrirlestra og svo skrifborðsæfingar, þar sem ýmis stórslys hafa verið sett upp, svo sem aurskriður, eldur í skipi og flugslys. Mér persónulega datt alls ekki í hug að svo mikil væri tæknin á bak við þetta allt. Aðalumsjónarmaður með þessu námskeiði er Rögnvaldur, lögreglufulltrúi hjá almannavarnardeild RLS, enda maðurinn hafsjór fróðleiks um þessi mál.

Við útskrifumst svo á morgun með réttindi vettvangsstjóra.  Ef allt gengur stórslysalaust að óskum.

Danmörk;
Þá er í fullum gangi skipulagning á Danmerkurferðinni okkar, sem farin verður í byrjun maí. Þá munum við sækja danska kollega okkar heim í heila viku og taka þátt í dagskrá á vegum þeirra. Ferð þessi er árleg og hefur ávallt gefist mjög vel. Fjáröflun er í fullum gangi svo og skipulagning á flugi og hóteli.

Hverjir eru hér?
Það er til hugtak sem notað er hér á veraldarvefnum. Það er um þá sem "læðast" um á netinu og láta engan vita af sér. Ég persónulega væri mjög til í að fá að vita hvaða heljarmenni eru að skoða síðuna(veitir manni innblástur sjáið), svo ég hvet ykkur til að skilja eftir komment.Svalur

Að lokum;
Það dylst engum að það er nóg að gera hjá okkur. Heimanámið er mjög mikið og mikið á döfinni, t.d. námskeið í Evidenzer (sem er fyrir þá sem ekki vita tæki sem mælir áfengismagn í útönduðu lofti og kemur í mörgum tilfellum í stað blóðprufunnar), heljarinnar skýrsluskil í nokkrum erfiðum málum og fleira.

Eins og mætur maður sagði:
Þetta er bara vinna! 

Hönd til kveðju upp!
GummiÞ-0732!

Athugasemdir

1
Sindri fyrrum 0745 skrifar:
Gaman að lesa þetta :) gangi ykkur vel
15. febrúar 2008 klukkan 00:12
2
Líney skrifar:
Mjög góð færsla....og svo er það bara þannig að það eru allir að farað rústa þessu vettvangsstjóra prófi og ekkert kjaftæði :)
15. febrúar 2008 klukkan 07:56
3
Berglind skrifar:
I am gooooing crazzzzí :) hei flott blogg sætalingur :p
15. febrúar 2008 klukkan 20:57
4
Harpa - 0705 skrifar:
Já sæll... flott færsla hjá þér drengs ;) Eigum við eitthvað að ræða þetta pappírsflæði... crazy að gera... Nei nei ekkert álag á lögreglunemum !!! Ekki að ræða það að hægt sé að taka aukavinnu með þessu öllu saman :)
16. febrúar 2008 klukkan 23:39
5
Gaman að geta fylgst með ykkur þarna í skólanum og enn skemmtilegra að geta skoðað myndir.
Gangi ykkur vel.
17. febrúar 2008 klukkan 14:43
6
Pési skrifar:
Veriði bara dugleg að blogga fyrir múttu.. ekki nenni ég því :)
17. febrúar 2008 klukkan 14:56
7
Skemmtilegar færslur og gaman að geta fylgst aðeins með ykkur;) Farið vel með kallana mina, Júlla og Sigurkarl:)
Gangi ykkur vel með allt saman:o*
20. febrúar 2008 klukkan 09:00
8
Viggi 0719 skrifar:
Jamm og Jæja svo mikil voru þag orð. En ætla leyfa mér að fullyrða það að sökum vanhæfni móður minnar á tölvur og örðugleika við að forrita á lyklaborð, mun hún ekki skilja eftir Kommen á síðu þessari.
27. febrúar 2008 klukkan 20:12
9
Gulli - 0765 skrifar:
Standið ykkur vel, stutt eftir, gaman að fá að fylgjast með ;)
01. mars 2008 klukkan 17:48

Skrifa athugasemd

Teljari

Könnun

Hvernig leggst skólinn í þig?