700kallar.bloggar.is
Útskrifuð700kallar
Heirðu já.. við erum víst útskrifuð ef það hefur farið framhjá ykkur ;)Skál.
PHJ-0746
Það styttist og styttist700kallar

Já, eftir tæplega þrjár vikur munu 45 nemendur Lögregluskóla ríkisins útskrifast eftir eins og hálfs árs nám. Mikil tilhlökkun í bland við prófastress og verkefnaskil einkennir hugarástand okkar þessa dagana. Það verður ekki sagt annað en að pressan sé mjög mikil.
Það sem við höfum gengið í gegnum á þessari önn er margt og ótrúlega mikið. Það nýjasta er að flestir hafa lokið lokaprófinu í stöðvaæfingum og held ég að ég geti kastað því fram að bætingar hafi verið hjá ölllum. Haldið var próf í rötun hjá Óla Emils og vonandi rata allir heim til sín úr skólanum núna. Skotvopnaprófið flaug í gegn og það næsta á dagskrá þessa vikuna er óeirðarþjálfunarnámskeið, sem haldið er af skólanum og sérsveit Ríkislögreglustjórans. Allt varðandi námskeiðið er að sjálfsögðu hernaðarleyndarmál.
Annars var ég að henda inn nokkrum myndum ----> hingað.
Hönd til kveðju upp!
GummiÞ-0732
Loka Partý700kallar
Jæja komiði sæl
Það hefur komið upp sú umræða að halda eitt almennilegt Loka Partý á laugardeginum eftir útskriftina þar sem við munum öll koma saman í síðasta sinn.
Pælingin er að reynað legija einhvern almennilegann sal sem allir mundu borga í þannig það yrði að öllum líkindum einhver 1000-1500 kr á mann.
Erfitt er að fá sali á þessum tíma vegna ferminga þannig að ef einhver telur sig geta reddað sal eða veit um einhvern góðann væri fínt ef sá hinn sami mundi reyna að tékka á þeim sal og láta svo vita.
Lýst ykkur ekki bara vel á þetta?
Það er bara MÁNUÐUR eftir og svo próf.....þetta náttla er ekki hægt sko!
LRG-0747
Það hefur komið upp sú umræða að halda eitt almennilegt Loka Partý á laugardeginum eftir útskriftina þar sem við munum öll koma saman í síðasta sinn.
Pælingin er að reynað legija einhvern almennilegann sal sem allir mundu borga í þannig það yrði að öllum líkindum einhver 1000-1500 kr á mann.
Erfitt er að fá sali á þessum tíma vegna ferminga þannig að ef einhver telur sig geta reddað sal eða veit um einhvern góðann væri fínt ef sá hinn sami mundi reyna að tékka á þeim sal og láta svo vita.

Lýst ykkur ekki bara vel á þetta?

Það er bara MÁNUÐUR eftir og svo próf.....þetta náttla er ekki hægt sko!
LRG-0747

Tími fyrir aðgerðir?700kallar
Já sæll! Það er nóg að gerast hjá okkur núna og hefur verið síðustu vikur. Vegna fjölda áskoranna læt ég hér flakka valinkunn orð, en það er af miklu að taka:Beinar útsendingar;
Í síðustu viku var próf í réttarsögu og á það mjög líklega eftir að koma vel út fyrir alla, þó svo að ein og ein spurning hafi verið að flækja málin. Jah, svona eins og gengur og gerist.
Og Óskarinn fæææær;
Það verður að minnast hér á ofbeldis- og kynferðisbrotafræðsluna sem við fengum fyrir 2 vikum. Þá fór öll vikan í lærdóm og fyrirlestra um þessi mál, enda málaflokkurinn víðfemur og oft á tíðum mjög flókinn(eins og starfið í heild). Fræðslan heppnaðist í alla staði mjög vel og er skemmst að minnast þess að ýmsir lögreglunemar hafa verið tilnefndir til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í raunhæfum verkefnum. Þá reyndi mjög á lögreglunema að takast á við aðstæður sem oft koma fyrir í starfinu.
Innfarar- og glock-tækni;
Af gefnu tilefni fengum við kennslu hjá Gumma Ásgeirs í lögregluæfingum, eða í þessu tilfelli aðgerðum. Þá lærðum við innfarartækni, enda kominn tími til. Ekki verður farið nánar út í þau atriði hér, en æfingarnar tókust vel að mínu viti. Sama dag var svo kennsla í meðhöndlun Glock, og fór Óli Egils út í ýmsa fræði um Glock-inn, eins og honum einum er lagið.
Vettvangsstjóri kallar á aðgerðarstjórn;
Þessa vikuna höfum við verið hjá ýmsum sérfræðingum í almannavörnum, að læra vettvangsstjórnun með tilliti til stórra slysa. Mjög áhugavert. Hefur öll vikan farið í fyrirlestra og svo skrifborðsæfingar, þar sem ýmis stórslys hafa verið sett upp, svo sem aurskriður, eldur í skipi og flugslys. Mér persónulega datt alls ekki í hug að svo mikil væri tæknin á bak við þetta allt. Aðalumsjónarmaður með þessu námskeiði er Rögnvaldur, lögreglufulltrúi hjá almannavarnardeild RLS, enda maðurinn hafsjór fróðleiks um þessi mál.
Við útskrifumst svo á morgun með réttindi vettvangsstjóra. Ef allt gengur stórslysalaust að óskum.
Danmörk;
Þá er í fullum gangi skipulagning á Danmerkurferðinni okkar, sem farin verður í byrjun maí. Þá munum við sækja danska kollega okkar heim í heila viku og taka þátt í dagskrá á vegum þeirra. Ferð þessi er árleg og hefur ávallt gefist mjög vel. Fjáröflun er í fullum gangi svo og skipulagning á flugi og hóteli.
Hverjir eru hér?
Það er til hugtak sem notað er hér á veraldarvefnum. Það er um þá sem "læðast" um á netinu og láta engan vita af sér. Ég persónulega væri mjög til í að fá að vita hvaða heljarmenni eru að skoða síðuna(veitir manni innblástur sjáið), svo ég hvet ykkur til að skilja eftir komment.

Að lokum;
Það dylst engum að það er nóg að gera hjá okkur. Heimanámið er mjög mikið og mikið á döfinni, t.d. námskeið í Evidenzer (sem er fyrir þá sem ekki vita tæki sem mælir áfengismagn í útönduðu lofti og kemur í mörgum tilfellum í stað blóðprufunnar), heljarinnar skýrsluskil í nokkrum erfiðum málum og fleira.
Eins og mætur maður sagði:
Þetta er bara vinna!
Hönd til kveðju upp!
GummiÞ-0732!
nokkrar myndir700kallar
Setti inn nokkrar nýjar myndir hér til hliðar undir Myndir 1
Þeir sem hafa verið að taka myndir endilega reyna að skella þeim inn :)
0747
Þeir sem hafa verið að taka myndir endilega reyna að skella þeim inn :)
0747
MYNDIR!700kallar
STANDIÐ RÉTT!!

Það kom upp eitthvað vandamál með að setja inn myndir á síðuna þar sem það þarf að kaupa einhvern aðgang til að geta sett vissan fjölda af myndum inn. Auðvitað tímum við því ekki og kenni ég 30 þúsund kalla leysi um það

Þannig ég tók mig til og gerði bara myndasíðu fyrir okkur sem er hérna vinstra megin á síðunni til þess að við getum tjáð okkur bæði á máli og myndum

Þetta er sem sagt myndasíðan myphotoalbum.com og notendanafnið og lykilorðið inn á hana er það sama og inn á þessa.
Þar sem þetta er komið í lag vænti ég þess að þið sleppið fram af ykkur beilsinu í myndatökum (enda búin að fá góða kennslu í því) og skellið þeim hér inn

Á BROTT GAKK !!
LRG-0747
GN III hafin, smá yfirlit700kallar
Ojæja, ákvað að taka mér það bessaleyfi að skrifa smá um upphaf grunnnáms III í Lögregluskóla ríkisins.Fyrri hluti, seinni hluti:
Eins og mörgum er kunnugt um eru tveir hópar sem bera 07XX lögreglunúmer og hófu nám við lögregluskólann árið 2007. Annars vegar við, fyrri hlutinn, sem ber númer upp í 0748 og hins vegar seinni hlutinn sem ber númer fyrir ofan það og ég kann ekki heildartölu á.
Starfsnámi lokið;
Eeen engu að síður. Frá maí og fram til áramóta unnum við eins og kettir í kringum heitan graut á götum höfuðborgarsvæðisins, Suðurnesja og á fleiri stöðum úti á landi og fyrir mitt leyti þá var ég nokkuð sáttur við þessa átta mánuði í "stríðinu."
Upphaf GN III:
Skólinn hófst með pompi og prakt þann 8. janúar, að sjálfsögðu á þriðjudegi eins og hefð er fyrir. Og þá hófst verkefnavinnan! Tíminn er stuttur og þegar þetta er ritað ekki nema rúmir 80 dagar í útskrift, sem haldin verður í Bústaðarkirkju þann 18. apríl. Verið þar eða verið kassar.
Fjölgar í hópnum:
María Ósk sem var með okkur á fyrstu önninni, þá ólétt, eignaðist lítið löggubarn fyrir stuttu og að sjálfsögðu óskum við henni til hamingju með það.
Námið á önninni:
Námið á þessari önn er í heild rúmar 600 kennslustundir og af þeim eru ríflega 1/3 einungis verkleg þjálfun sem er breyting frá fyrri árum. Þá miðar námið einnig að því að það reynir meira á okkur sjálf sem lögreglumenn, þ.e. að við þurfum að afla okkur dýpri þekkingar á ýmsum málum, lögum og reglum. Enn sem komið er lýst mér mjög vel á það og held að ég geti skotið á að fleiri geri það.
CSI Íslands?
Það sem við höfum lært undanfarið í verklegri þjálfun er t.d. taka fingra- og skófara, en dyggir lögreglumenn frá tæknideild LRH veittu okkur innsýn í hluta síns áhugaverða starfs, sem flestir vilja tengja við CSI sjónvarpsþættina - en sú tenging er alls ekki raunhæf. Þá höfum við einnig lært sitt hvað um stöðvun ökutækja og var sú þjálfun mjög áhugaverð. Ekki má gleyma föstum liðum eins og venjulega, þ.e. 3 km hlaupa- og stöðuprófum Aðalsteins og Gumma og verð ég líka að minnast á fjallagarpaferð á Esjuna sem farin var í síðustu viku.
Að lokum:
Að mínu viti eru allir vel spenntir og áhugasamir um krefjandi verkefni annarinnar. Að sjálfsögðu eru allir með það eitt að leiðarljósi að klára þetta markmið, eins og hin tvö!
Engu að síður held ég að þessi lesning sé orðin þokkaleg. Við munum verða dugleg við að uppfæra okkur við umheiminn.....
Fylking! á brott gakk, yfir og út!
GummiÞ-0732
Ný Síða!700kallar
Jæja, ákváðum að opna nýja síðu fyrir okkur þar sem hin fór alveg í ruglið
Hingað inn geta allir fengið aðgang og vonumst við til að sem flestir sjái sér fært um að koma með framlag á síðuna ...bæði blogg og myndir

Endilega verið í sambandi við Hörpu eða Líney ef ykkur vantar að fá aðgang

Líney